Collector
Beita Rússland refsiaðgerðum vegna barnsrána | Collector
Beita Rússland refsiaðgerðum vegna barnsrána
Fréttastofa RÚV

Beita Rússland refsiaðgerðum vegna barnsrána

Evrópusambandið samþykkti í dag refsiaðgerðir gegn sjö rússneskum ríkisstofnunum og 16 einstaklingum fyrir að hafa rænt börnum frá Úkraínu. Fram kemur í yfirlýsingu sambandsins að síðan Rússland hóf allsherjarinnrás í Úkraínu sé áætlað að ríkið hafi flutt um 20.500 úkraínsk börn nauðug úr landi. Þá segir í yfirlýsingunni að þetta séu gróf brot á alþjóðalögum og á mannréttindum barnanna. Reynt sé að afmá sjálfsmynd barnanna sem Úkraínumanna. Í refsiaðgerðunum felst að eignir eru frystar og fyrirtækjum og einstaklingum aðildarríkja ESB er bannað að útvega þeim fjármuni. Þá mega einstaklingarnir sem refsiaðgerðirnar ná til ekki ferðast til landa ESB. Fundur var í dag í höfuðstöðvum ESB um það hvernig hægt verði að ná fleiri börnum til baka. Fulltrúar Úkraínu og Kanada voru einnig á fundinum. Óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um málefni Úkraínu greindi frá því í mars að yfirvöld á hernumdum svæðum hefðu framið glæpi gegn mannkyni með því að flytja úkraínsk börn nauðug á brott. Alþjóða sakamáladómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín Rússlandsforseta og umboðsmanni barna í Rússlandi, Mariu Lvovu-Belovu, fyrir barnsránin. Þá hefur ríkisstjórn Bretlands samþykkt að beita Rússland refsiaðgerðum vegna barnsrána og upplýsingahernaðar. Þær ná til 85 einstaklinga og stofnana. Refsiaðgerðirnar fyrir upplýsingahernað eru meðal annars fyrir tilraunir til afskipta af þingkosningum í Armeníu í júní. Aðgerðunum er beint að fólki sem starfar fyrir rússneska ríkið, meðal annars sem textahöfundar, þýðendur og framleiðendur myndbanda sem ríkisstjórn Bretlands telur ábyrga fyrir framleiðslu á „blekkjandi áróðri Kremlar“.

Go to News Site