Fréttastofa RÚV
Icelandair segir margt benda til þess að ástæður raskana á flugi séu óformlegar aðgerðir flugmanna, þrátt fyrir yfirlýsingar Félags íslenskra atvinnuflugmanna um að engar aðgerðir sem tengist kjaraviðræðum séu hafnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flugfélaginu. „Óvenjulegt er að ekki náist að manna flug þegar um forföll er að ræða og eru vísbendingar um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika í þessum aðstæðum,“ segir í yfirlýsingunni. Minnst tveimur flugferðum Icelandair hefur verið aflýst síðustu daga því ekki tókst að manna flugstjórnarklefann og í morgun þurfti að seinka flugi vegna forfalla hjá áhöfn. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í síðustu viku að hann tryði því ekki að flugmenn væru í óformlegum verkfallsaðgerðum tengdum kjaraviðræðum félagsins við þá. Hann segir í yfirlýsingu félagsins í dag að það sé óásættanlegt ef rétt reynist. „Það er mikilvægt að allir aðilar sýni ábyrgð í þessari stöðu og það er óásættanlegt ef rétt reynist að verið sé að valda félaginu tjóni og farþegum óþægindum vegna óformlegra aðgerða. Staðan er krefjandi í flugrekstri um þessar mundir vegna óvissu í alþjóðaumhverfinu og hefur eldsneytisverð til að mynda tvöfaldast, en það er einn stærsti kostnaðarliður félagsins. Á sama tíma er um að ræða stétt sem nýtur framúrskarandi starfskjara, einna bestu kjara sem flugmönnum á Norðurlöndum bjóðast. Kjaraviðræðurnar eru nú á forræði Ríkissáttasemjara og hafa sinn gang þar. Það er brýnt að við náum skynsamlegum samningum sem allra fyrst,“ er haft eftir Boga í yfirlýsingu.
Go to News Site