Collector
Biðu í rúman hálftíma eftir sjúkrabíl vegna óljósra upplýsinga | Collector
Biðu í rúman hálftíma eftir sjúkrabíl vegna óljósra upplýsinga
Fréttastofa RÚV

Biðu í rúman hálftíma eftir sjúkrabíl vegna óljósra upplýsinga

Rúmur hálftími leið frá því fyrsta símtal barst Neyðarlínu vegna líkamsárásar í Hamraborg í Kópavogi og þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Fjórtán ára drengur hafði verið kýldur í andlitið og var að sögn sjónarvotts með skerta meðvitund. Neyðarlína og Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra segja upplýsingar um vettvang hafa verið óljósar og það hafi valdið óvenjulöngum viðbragðstíma. Neyðarlínu bárust fimm símtöl vegna atviksins 29. apríl síðastliðinn, fyrst klukkan 13:57, en sjúkrabíll kom á staðinn klukkan 14:29. Sjónarvottar hafa gagnrýnt langan viðbragðstíma og fréttastofa óskaði svara frá Neyðarlínu og Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni bárust fyrstu tvö símtöl frá manneskju sem ekki varð vitni að atvikinu heldur hafði heyrt af því og óskaði eftir aðstoð lögreglu, fyrst vegna upplýsinga um möguleg hópslagsmál og seinna vegna upplýsinga um að einhver lægi blóðugur eftir. Honum var gefið samband við fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Í þriðja símtalinu frá sama innhringjanda kom fram að sá sem varð fyrir árásinni væri kominn til innhringjanda eftir að vinir hans báru hann þangað. Honum var í þriðja sinn gefið samband við lögreglu. Samkvæmt sjónarvotti var heilbrigðisstarfsfólk af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sótt til að líta á drenginn. Einn heilbrigðisstarfsmannanna hringdi á Neyðarlínuna klukkan 14:17, sagði drenginn með skerta meðvitund og ítrekaði ósk eftir sjúkrabíl. Um svipað leyti mætti lögregla á staðinn og óskaði klukkan 14:17 eftir sjúkrabíl á þriðja forgangi vegna ungs manns með áverka í andliti. Neyðarlínan boðaði sjúkrabílinn mínútu síðar. Samkvæmt sjónarvotti var heilbrigðisstarfsfólk orðið órólegt og hringdi aftur í Neyðarlínu nokkrum mínútum síðar þar sem fram kom að drengurinn svari illa og sé með skerta meðvitund. Klukkan 14:24 hækkaði Neyðarlínan útkall sjúkrabíls í forgang tvö og boðaði annan sjúkrabíl. Fyrri sjúkrabíllinn kom á staðinn kl 14:29, ellefu mínútum eftir að hann var boðaður, eins og fram hafði komið í svörum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Hljómaði eins og hefðbundið lögreglumál en hefði mátt spyrja frekar Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að samkvæmt fyrstu símtölum hafi málið hljómað eins og hefðbundið lögreglumál og innhringjandi því verið sendur þangað. Um það leyti sem sjúkrabíls hafi fyrst verið óskað í símtali 4 hafi lögregla einnig óskað eftir sjúkrabíl og þegar fimmta símtalið barst hafi forgangur verið hækkaður. Hann segir þó að eitt hefði mátt betur fara, neyðarvörður hefði átt að spyrja innhringjanda fleiri spurninga í símtali þrjú þegar drengurinn var kominn til hans, áður en hann var sendur áfram til fjarskiptamiðstöðvar lögreglu. Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, segir að almennt sé það hlutverk Neyðarlínu að meta þörf fyrir sjúkrabíl þegar símtal berst. „Lögregla óskar alla jafna ekki eftir sjúkrabíl fyrr en hún er mætt á vettvang og getur metið aðstæður. Í þessu tilviki voru upplýsingar um vettvang óljósar og tók það lögreglu tíma að staðsetja brotaþola en þegar það tókst var óskað strax eftir sjúkrabíl,“ segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Jón Svanberg hjá Neyðarlínunni segir Neyðarlínuna taka ábendingum um hugsanleg mistök í þjónustu alvarlega og þau séu rýnd til að lágmarka líkur á mistökum. „Það skiptir okkur miklu máli að fá upplýsingar ef fólk telur sig ekki fá þá þjónustu sem það þarf,“ segir Jón Svanberg.

Go to News Site