Collector
Íslandsmeistararnir björguðu sér í uppbótartíma | Collector
Íslandsmeistararnir björguðu sér í uppbótartíma
Fréttastofa RÚV

Íslandsmeistararnir björguðu sér í uppbótartíma

Breiðablik og Valur mættust á Kópavogsvelli í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Breiðablik var taplaust fyrir leikinn en Valskonur höfðu unnið einn leik það sem af er tímabili. Leikurinn tók krappa beygju í uppbótartíma. Það var strax á þriðju mínútu leiksins að Líf Jootsdóttir van Bemmel kom heimakonum yfir með fremur ódýru marki eftir mistök markvarðar Vals, 1-0. Það þurfti hins vegar ekki að bíða lengi eftir svari frá gestunum því Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði leikinn með flottu marki á 11. mínútu. Margrét Brynja bætti um betur því hún kom Val í 2-1 á 17. mínútu. Liðið fékk stuttu síðar högg því Hrafnhildur Salka Pálmadóttir var rekin út af fyrir hártog. Viðsnúningur í uppbótartíma Síðari hálfleikur var fremur rólegur og stefndi í að tíu Valskonur myndu ná að halda út. Blikar vöknuðu hins vegar til lífsins og á 91. mínútu stangaði Sunna Rún Sigurðardóttir boltann í netið og jafnaði leikinn, 2-2. Loks var það Bryndís Arna Níelsdóttir sem skaut að marki þar sem boltinn endaði eftir viðkomu hjá Málfríði Önnu Einarsdóttur. Íslandsmeistararnir björguðu sér fyrir horn og eru því enn með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir, rétt eins og ÍBV.

Go to News Site