Collector
Aukaverkanir geti verið alvarlegar sé lyfjaskammturinn ekki réttur | Collector
Aukaverkanir geti verið alvarlegar sé lyfjaskammturinn ekki réttur
Fréttastofa RÚV

Aukaverkanir geti verið alvarlegar sé lyfjaskammturinn ekki réttur

Rangir skammtar af þyngdarstjórnunarlyfjum geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og leitt til álags á ýmis líffæri, segir innkirtlalæknir. Varasamt sé að taka inn slík lyf án handleiðslu læknis. „Hvaðan koma þessi lyf“ Lyfseðilsskyld lyf á borð við Ozempic og Wegovy ganga kaupum og sölum á samfélagsmiðlum – og líkt og fram kom í fréttum í gær hefur nýtt efni sem á að stuðla að hröðu þyngdartapi rutt sér til rúms, tilraunalyfið Retatrutide, eða Reta, sem ekki er komið á markað. „Þannig að ef það er verið að selja það einhvers staðar þá er ekki líklegt að það sé lyf sem er rétt framleitt. Það er líka þannig að þetta hefur ekki verið náttúrulega í notkun. Það eru engir læknar hér á landi sem eru vanir að nota þessi lyf,“ segir Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, innkirtlalæknir og yfirlæknir á efnaskipta- og offitusviði á Reykjalundi. „Og þá náttúrlega auðvitað veltir maður því upp hvaðan koma þessi lyf? Og eru þetta raunveruleg lyf eða eru þetta einhverjar eftirhermur eða eitthvað sem gæti verið hættulegt?“ Rangir skammtar af þyngdarstjórnunarlyfjum geta haft alvarlegar afleiðingar á lifur og bris og jafnvel leitt til sjóntaps segir innkirtlalæknir. Alvarlegt sé að slík lyf gangi kaupum og sölum á svörtum markaði. Rangir skammtar valdi álagi á fjölda líffæra Guðrún segir að lyfin hafi mun víðtækari áhrif en fólk geri sér grein fyrir. Rangir skammtar valdi óþarfa álagi á fjölda líffæra. „Svo skiptir það líka máli að þetta eru eftirhermur eftir peptíðum eða hormónum sem við framleiðum í líkamanum. Og þessi hormón á peptíð hafa viðtaka úti um allan líkama og ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því að þau hafa miklu víðtækari áhrif en bara það að hafa áhrif á seddu og svengd.“ Guðrún segir þyngdarstjórnunarlyf hafa þekktar aukaverkanir og þær geti verið alvarlegar. Því sé mikið áhyggjuefni að fólk taki inn slík lyf án handleiðslu lækna. „Það sem ég myndi kannski helst hafa áhyggjur af er að fólk sé að nýta sér þetta og þekki ekki skammtana, að það verði fyrir til dæmis óþarfa álagi á lifur og brisið og það verði óþarflega mikið vöðvamassatap,“ segir Guðrún. „Svo hef ég líka áhyggjur af því að ef fólk er að taka lyf sem það hefur ekki fengið uppáskrifað frá lækni þá er það kannski hrætt við að leita sér aðstoðar ef það koma upp einhverjar alvarlegar aukaverkanir eða vandamál tengd lyfinu,“ bætir hún við. Alvarlegar aukaverkanir sjaldgæfar „En það hafa komið upp aukaverkanir, til dæmis í tengslum við offitulyfin eins og Wegovy, fólk hefur til dæmis fengið sjóntap. Það geta komið upp alvarlegar aukaverkanir í tengslum við brisið eins og brisbólga,“ segir Guðrún. „Og ef fólk leitar svo til læknis og læknarnir vita til dæmis ekki að þessi lyfjameðferð sé í gangi, þá getur það kostað bara óþarfa rannsóknir og uppvinnslu af því að við erum ekki meðvituð innan heilbrigðiskerfisins um að einstaklingurinn sé á þessum lyfjum.“

Go to News Site