Collector
Að minnsta kosti 6 með jákvæð hantaveirusmit - 18 með væg einkenni | Collector
Að minnsta kosti 6 með jákvæð hantaveirusmit - 18 með væg einkenni
Fréttastofa RÚV

Að minnsta kosti 6 með jákvæð hantaveirusmit - 18 með væg einkenni

Síðustu farþegarnir og hluti áhafnarinnar úr Hondiusi voru flutt frá skipinu og út á flugvöll í gærdag. Hér er einn þeirra í rútu á leið út á flugvöll.EPA / Ramon de la Rocha Skemmtiferðaskipið Hondius lagði af stað frá Tenerife til heimahafnar í Hollandi í gærkvöld. Síðustu farþegar fóru frá skipinu í gærdag. Búist er við því að skipið komi til Rotterdam á sunnudagskvöld. Alls eru þrír látnir eftir hantaveirusmit; hollensk hjón og þýsk kona. Að minnsta kosti sex einstaklingar hafa greinst með jákvætt hantaveirusmit eftir að þeir fóru af skipinu og 17 bandarískir ríkisborgarar sem voru um borð í skipinu sýna væg einkenni hantaveirusmits og eru í einangrun. Þá er einn Breti sem fór af skipinu í Tristan da Cunha líklega smitaður. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur litlar líkur á útbreiðslu hantaveirufaraldurs.

Go to News Site