Collector
Spá ýmist minnkandi eða óbreyttri verðbólgu | Collector
Spá ýmist minnkandi eða óbreyttri verðbólgu
Fréttastofa RÚV

Spá ýmist minnkandi eða óbreyttri verðbólgu

Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbanka birtu í dag spár sínar um hversu mikil verðbólgan verður í maí. Nokkur munur er á spánum þó að niðurstöðurnar séu á svipuðum slóðum. Íslandsbanki spáir því að neysluverðsvísitalan hækki um 0,2 prósent í maí. Gangi það eftir verður ársverðbólga 5,2 prósent, sú sama og verðbólgan sem mældist í apríl. Landsbankinn spáir 0,13 prósenta hækkun neysluverðsvísitölu. Það myndi leiða til minni verðbólgu á ársgrundvelli. Þá yrði hún 4,9 prósent og mældist í fyrsta skipti á árinu undir fimm prósentum. Bæði Landsbankinn og Íslandsbanki telja að lækkun eldsneytisverðs vegna lægri virðisaukaskatts dragi úr verðbólgu. Íslandsbanki spáir því að húsaleiga og flugfargjöld verði til þess að verðbólga aukist en Landsbankinn telur að flugfargjöld hækki ekki jafn mikið og síðustu mánuði og því verði verðbólga minni sem því nemur.

Go to News Site