Collector
Katrín Tinna til Danmerkur | Collector
Katrín Tinna til Danmerkur
Fréttastofa RÚV

Katrín Tinna til Danmerkur

Íslenska landsliðskonan og ÍR-ingurinn Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við HH Elite í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Þetta kemur fram í færslu ÍR Handbolta á samfélagsmiðlum en þar er Katrínu þakkað fyrir vel unnin störf hjá ÍR hvar hún hefur leikið frá árinu 2024. Katrín er línumaður og einnig öflugur varnarmaður. HH Elite er staðsett í Horsens og endaði í 7. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og datt snemma út úr úrslitakeppninni. Katrín Tinna er öflugur línumaðurRÚV / Mummi Lú

Go to News Site