Fréttastofa RÚV
ÍBV tók á móti Val í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í handbolta í kvöld. Valur leiddi einvígið 2-1 fyrir leikinn. Leikurinn var afar spennandi en að lokum voru það Valskonur sem höfðu sigurinn og tryggðu Íslandsmeistaratitilinn um leið. Valur byrjaði betur en ÍBV komst í fyrsta sinn yfir á 17. mínútu, 10-9. Valur veitti þétt aðhald og Elísa Elíasdóttir kom liðinu loks yfir á nýjan leik á 28. mínútu, 15-14. Britney Cots skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks og sá til þess að ÍBV leiddi með einu í leikhléi, 16-15. Valur byrjaði síðari hálfleik mun betur og Hafdís Renötudóttir varði vel. Samhliða því komst liðið snemma fjórum mörkum yfir 20-16. Þá var orkan frekar með Valskonum og liðið hélt ÍBV í öruggri fjarlægð og fjögurra marka sigur Vals varð niðurstaðan, 26-30. Valur er því Íslandsmeistari fjórða árið í röð.
Go to News Site