Fréttastofa RÚV
Reykjanesbær varð til 1994 við sameiningu þriggja sveitarfélaga: Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. Þetta er stærsta sveitarfélagið utan höfuðborgarsvæðisins. Þar bjuggu tæplega 23.000 manns um áramót. Á síðasta kjörtímabili sátu fulltrúar fimm flokka í sveitarstjórn. Framsóknarflokkur, Samfylkingin og Bein leið mynduðu saman meirihluta. Fimm flokkar bjóða fram fyrir þessar kosningar: Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Samfylkingin. Mikið átak var gert í fjármálum sveitarfélagsins á síðustu árum og skuldastaða hefur farið batnandi. Íbúar segja samgöngumálin helst brenna á þeim, menntamálin auk þess sem lækka megi fasteignagjöld. Þá voru flestir sem fréttastofa ræddi við sammála um að finna þyrfti bókasafni bæjarins nýjan stað.
Go to News Site