Fréttastofa RÚV
Höggmyndirnar eru komnar heim. Þá er átt við risavaxna skúlptúra listamannsins Jóhanns Eyfells en 16 tonn af skúlptúrum bárust á dögunum yfir hafið og heim. Þar voru á ferðinni verk höggmyndalistamannsins Jóhanns Eyfells, komin alla leið frá Texas til að prýða sali Listasafns Íslands. Jóhann er einn ástsælasti höggmyndalistamaður Íslendinga. Hann bjó í Texas þar sem hann hafði komið sér fyrir á búgarði með stúdíó og safn verka sinna. Hann féll frá árið 2019, þá 96 ára gamall, en sinnti listinni fram á síðasta dag. Frá þeirri stundu hófst vinna við að koma umfangsmiklu safni verka hans til Íslands. Fyrir flutningunum fór sonur Jóhanns, Ingólfur Eyfells. „Þetta er stór stund fyrir okkur erfingja Jóhanns Eyfells, við erum núna að opna gáma sem eru komnir hingað alla leið frá Texas.“ Þar að auki voru verk eiginkonu hans, myndlistarkonunnar Kristínar Halldórsdóttur, flutt með höggmyndum Jóhanns yfir hafið. Verkin sýnd eftir tvö ár Ingólfur segir það létti að verkin hafi komist heil yfir hafið. „Eins og ég segi þá er þetta stóra stundin, að sjá ástandið á þessu öllu eftir þessa miklu flutninga yfir hafið og að ekkert hafi haggast.“ Jóhann starfaði á Íslandi um árabil og kenndi við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík. Þekktasta verk hans er eflaust Íslandsvarðan við Sæbraut og hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 1993 ásamt Hreini Friðfinnssyni. Önnur verk eftir hann standa meðal annars á Miklatúni í Reykholti og á Hótel Sögu. Listasafn Íslands áformar yfirlitssýningu á verkum Jóhanns eftir tvö ár, árið 2028. „Það verður gaman að sjá þetta komið allt á stall, þetta verður megaflott og skemmtilegt,“ segir Ingólfur. Í Kastljósi kvöldsins má sjá umfjöllunina í heild sinni. Risavaxnir skúlptúrar listamannsins Jóhanns Eyfellds voru fluttir yfir Atlantshafið á dögunum. Listasafn Íslands áformar yfirlitssýningu á verkunum árið 2028.
Go to News Site