Fréttastofa RÚV
Mohammad Bagher Ghalibaf, þingforseti og helsti samningamaður Íransstjórnar, segir að Bandaríkin verði að samþykkja nýjustu friðaráætlun Írana í fjórtán liðum eða hljóta afhroð ella. Helstu ákvæðin væru um lok stríðsins á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, losun hafnbanns Bandaríkjanna og að frystingu íransks fjármagns erlendis linni. Ghalibaf lýsti þessu yfir á X skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti staðhæfði að vopnahléð væri að renna út í sandinn og að tillögur Írana væru algerlega óásættanlegar. Sigur Bandaríkjanna væri í sjónmáli. Þau viðbrögð urðu til þess að olíuverð hækkaði á mörkuðum. Íranski byltingarvörðurinn hefur haldið æfingar í Teheran sem ætlað er að mæta öllum atlögum Bandaríkjamanna og Ísraela að sögn ríkismiðla landsins. Hvorugt ríki hefur viljað slaka nokkuð á kröfum sínum og bæði hafa hótað áframhaldandi árásum án þess að virðast vilja beinlínis halda styrjöldinni áfram. Bandaríkjamenn segja óásættanlegt að Íranir stjórni áfram umferð um Hormússund. Tilboð Írana er svar við tillögum Bandaríkjanna sem fátt hefur verið látið uppi um utan þess að bandarískir miðlar segja því hafa fylgt minnisblað um endalok átaka og frumdrög að endurnýjuðum viðræðum um kjarnorkuáætlun Írans.
Go to News Site