Fréttastofa RÚV
Stjórnvöld í Kyrrahafseyríkinu Nárú hafa boðað að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um að opinberu heiti landsins verði breytt til forns ritháttar. Yfirvöld lýsa núverandi rithætti nafnsins sem minjum frá nýlendutímanum þegar erlend tungumál spilltu móðurmálinu. Útlendingar hafi ekki getað borið nafn landsins fram og því hafi breyting verið gerð þeim til hagsbóta en ekki að eigin vali eyjarskeggja. Opinbera heitið verður Naoero samkvæmt yfirlýsingu forsetans David Adeang, sem heiðri arfleifð þjóðarinnar, tungumál hennar og sjálfsmynd. Eitt sinn var Nárú þekkt undir heitinu Sælueyja. Verði tillagan samþykkt og stjórnarskránni breytt verða nýtt heiti og einkennisstafir landsins tekin upp jafnt innanlands sem á alþjóðavettvangi, til að mynda innan Sameinuðu þjóðanna. Næstum allir tíu þúsund íbúar Nárú tala móðurmálið sem er míkrónesískt af ætt ástrónesískra mála. Enska er víða notuð í stjórnsýslu og viðskiptum þessa einhvers smæsta ríkis heims sem er sérlega viðkvæmt fyrir loftslagsbreytingum. Nárú var lengi eitt auðugasta ríki heims en nú ríkir þar mikið atvinnuleysi og heilbrigðisvandi, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðabankans. Óvenjuauðugar fosfatnámur eru löngu tæmdar og skildu víðfeðm svæði eftir óbyggileg. Nárú var þýskt verndarsvæði fram yfir lok fyrri heimsstyrjaldar og var stýrt sameiginlega af Áströlum, Nýsjálendingum og Bretum uns það hlaut sjálfstæði árið 1968.
Go to News Site