Fréttastofa RÚV
Verktakafyrirtækið COWI hefur skilað af sér niðurstöðum um hvaða aðferðir hentuðu best til að komast að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Fyrirtækið telur að best væri að síga eftir honum og að það væri betri kostur en að grafa í jörð eða nota sprengjur. Greint er frá þessu í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur endanlega ákvörðun um hvort reynt verði að ná Lúðvík upp eða ekki. Embættið er að fara yfir minnisblaðið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. Starfsmenn COWI segja að best væri að skipta leit í nokkur skref. Það fyrsta yrði sjónleit þar sem handafl eitt yrði notað til að færa jörð til. Í næsta skrefi yrðu handverkfæri og loftpúðar notuð. Ekki er talið rétt að nota sprengjur eða stórtæk tól því þá gætu líkamsleifarnar færst til í sprungunni. Fjölskylda Lúðvíks hefur óskað eftir því að reynt verði að ná líki Lúðvíks upp. Dómsmálaráðuneytið samþykkti fyrr á þessu ári að greiða kostnað við rannsókn á því hvort slíkt sé gerlegt.
Go to News Site