Vísir
Einu sinni gengu þrír blindir menn fram á fíl. Þeir höfðu aldrei áður komist í tæri við þá skepnu og voru því afar forvitnir. Þeir þreifuðu einn í einu á fílnum til að komast að raun um hvernig hann liti út. Sá fyrsti sagði: „Fíllinn er langur og mjór eins og reipi“. „Nei“, sagði annar, „hann er hár, hrjúfur og breiður eins og veggur“. „Ykkur skjátlast báðum hrapallega“, sagði sá þriðji, „fíllinn líkist mest feitri slöngu“.
Go to News Site