Fréttastofa RÚV
Þrjár konur fundust látnar í sjónum undan Brighton í Bretlandi í morgun. Ekki hafa verið borin kennsl á konurnar. Ekki er talið að fleiri séu í sjónum. Greint er frá málinu í fréttavakt breska ríkisútvarpsins , BBC. Þar segir að björgunarfólk hafi verið kallað út vegna þriggja kvenna í sjónum undan Madeira Drive klukkan 5:45 að staðartíma, eða 4:45 að íslenskum tíma. Fjöldi strandgæsluliða hafi komið að því að koma þeim í land, en þrjú björgunarskip komu að aðgerðinni. Strandgæslan hefur hætt leit í sjónum. Stórt svæði í kringum ströndina er þó enn lokað en talsverður viðbúnaður er á svæðinu. Brighton-ströndin verður áfram lokuð almenningi fram á kvöld. Adam Hayes, yfirmaður hjá lögreglunni í Brighton, segir atvikið hörmulegt. „Rannsóknin er á algjöru frumstigi. Forgangur okkar er að bera kennsl á allar þrjár konur og hafa samband við nánustu aðstandendur. Ég veit að þetta atvik kann að valda miklum áhyggjum í samfélaginu og við vinnum staðfastlega að því með öðrum að því að átta okkur á því hvað skeði hér,“ sagði Hayes á blaðamannafundi. „Þetta nær til þess að afla og yfirfara myndefni frá nærliggjandi svæði, meðal annars frá heimilum og fyrirtækjum.“ Þá bað Hayes vitni um að hafa samband við lögreglu.
Go to News Site