Fréttastofa RÚV
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann Afríkumeistara Egyptalands, 31-30 í fyrri vináttuleik liðanna í Kaíró í dag. Snorri Steinn Guðjónsson prófaði hina ýmsu menn í leiknum í dag enda fengu leikmenn á borð við Ómar Inga Magnússon, Gísla Þorgeir Kristjánsson, Elvar Örn Jónsson, Elliða Snæ Viðarsson, Ými Örn Gíslason og Björgvin Páll Gústavsson fengu frí að þessu sinni og þá er Viggó Kristjánsson meiddur. Ísland byrjaði vel og hafði frumkvæðið framan af. Þorsteinn Leó Gunnarsson kom Íslandi þremur mörkum yfir á 6. mínútu. Egyptar jöfnuðu svo í stöðunni 11-11 en Reynir Þór Stefánsson kom liðinu tveimur mörkum yfir á ný í stöðunni 12-14 á 29. mínútu en egypska liðið nýtti síðustu mínútu fyrri hálfleiks vel því liðið jafnaði og allt var jafnt í leikhléi, 14-14. Liðin mætast aftur á föstudag Egyptar mættu svo af fullum krafti inn i síðari hálfleik og á sama tíma fór að bera á hnökrum í varnarleik íslenska liðsins. Svo á 39. mínútu kom Yahia Omar egyptum fjórum mörkum yfir með marki úr vítakasti, 21-17. Íslenska liðið því komið í það hlutverk að elta. Orri Freyr Þorkelsson skoraði úr hraðaupphlaupi á 42. mínútu þegar hann minnkaði muninn í tvö mörk, 22-20. Það var svo Teitur Örn Einarsson sem jafnaði fyrir Ísland með flottu marki á 56. mínútu og Orri Freyr kom liðinu yfir, 31-30, og aftur var það hraðaupphlaup. Kristján Örn Kristjánsson var markahæstur í íslenska liðinu í dag með sex mörk. Liðin mætast aftur á föstudag klukkan 16:00 og verður leikurinn sýndur á RÚV. Egyptar endurgjalda svo heimsókn Íslands með því að koma til Reykjavíkur í janúar og spila tvo vináttuleiki í Laugardalshöll áður en bæði lið halda svo til Þýskalands á heimsmeistaramótið.
Go to News Site