Collector
Spáir að stýrivextir hækki í næstu viku | Collector
Spáir að stýrivextir hækki í næstu viku
Fréttastofa RÚV

Spáir að stýrivextir hækki í næstu viku

Greiningardeild Landsbankans spáir að stýrivextir hækki um 0,25 prósentustig í næstu viku. Þetta rökstyður hún með því að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar þrálátar. Peningastefnunefnd fer yfir stöðuna í næstu viku og tekur ákvörðun um hversu háir stýrivextir skuli vera. Ákvörðunin verður kynnt á miðvikudag. Stýrivextir hækkuðu úr 7,25 í 7,50 prósent við síðustu vaxtaákvörðun. Landsbankinn spáir að verðbólga hjaðni í maí og verði 4,9 prósent. Íslandsbanki telur að hún standi óbreytt í 5,2 prósentum. Merki Seðlabankans.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site