Collector
Hasar rokkar feitt og ýmislegt fleira | Collector
Hasar rokkar feitt og ýmislegt fleira
Fréttastofa RÚV

Hasar rokkar feitt og ýmislegt fleira

Hasar - Nýjasta tíska Fyrsta breiðskífa rokk- og rólsveitarinnar HASAR kom út á laugardag og er 11 laga plata sem að sögn sveitarinnar inniheldur „bara bensín og engar bremsur. Sprengjur og eldur, vagg, velta og vangaveltur. Er það sem er í gangi í kringum okkur málið? Hvernig tekst maður á við eigin tilfinningar og hvernig finnur maður losun og innri frið?" Gulur Bíll - ! Son Ágúst Gulur Bíll er fjögurra manna sveit úr Reykjavík og er ! Son Ágúst fyrsta lagið sem heyrist af væntanlegri plötu sem kemur út í lok maí og heitir Ávanar. Lagið ! Son Ágúst segja þeir að sé popprokk-smellur af bestu gerð en sveitina skipa þeir Birgir Hansen, Elís Svavarsson, Emil Svavarsson og Ástvaldur Axel Þórisson. Benedikt Arnar - Á heilanum í kvöld Á heilanum í kvöld er nýtt lag eftir þá Benedikt Arnar Jóhannesson og Auðun Lúthersson en sá fyrrnefndi samdi textann. Lagið skilgreina þeir félagar sem popp og segja það sé af nafnlausri plötu sem muni heldur betur slá í gegn í sumar. Undiraldan þriðjudaginn 19. maí Það er engin Undiralda í útvarpinu þessa vikuna vegna sveitarstjórnarkosninga en þessi fær að vera á vefnum þangað til hún verður send út í útvarpinu á þriðjudag með hávaða og látum frá Hasar, Gulum bíl og fleirum næsta þriðjudag. Arfi - Spring Underwater Arfi er þýsk-íslenskt tríó sem gerir tilraunakennda blöndu af raftónlist og lífrænni popptónlist. Hún er skipuð þeim K.óla, og dúettinum EAT THE FROG Kollektiv en þau kynntust á spunatónlistarsmiðju í Danmörku. Þrátt fyrir ólíkan tónlistarbakgrunn uppgötvuðu þau sameiginlegan áhuga á melódísku poppi og spunatónlist, sem þróaðist fljótt í vináttu og skapandi samstarf sem hefur getið af sér þröngskífuna Spring Underwater. Fjöll - Waltzing the Tides Waltzing the Tides er rólegt indírokk frá mönnunum í Fjöll með djúpum undirtóni þar sem dregið er fram hvernig sumt erfist í fjölskyldum, hvort sem við viljum það eða ekki. Lagið er það fyrsta af væntanlegri plötu sveitarinnar, sem kemur út síðar á árinu. Upptökuferli plötunnar hófst í Valencia fyrir rúmu ári og hefur bandið unnið jafnt og þétt að upptökum síðan þá. Scam - Mentally Gone Lagið Mentally Gone var samið eftir að meðlimir SCAM (Salka Valsdóttir og Herdís Stefánsdóttir) ferðuðust í 52 klukkustundir til Bali til þess að vinna að plötunni sinni. Þegar þær komu loks á leiðarenda voru töskurnar þeirra þó hvergi sjáanlegar. Salka og Herdís ákváðu að vinna með reiðina og sömdu lagið Mentally Gone sem fjallar um að stimpla sig út andlega til þess að fá frí frá þriðju vaktinni, kvíða og almennri bugun yfir daglegu amstri. Helga Dýrfinna, DiarBlack - Beautiful Lie Daniel Riedel kallar sig Diarblack en hann samdi lagið Beautiful Lie en Helga Dýrfinna syngur lagið sem fjallar um að skemmta sér með víni og vakna með þynnku og ef til vill eftirsjá. Lagalisti Undiröldunnar

Go to News Site