Fréttastofa RÚV
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest skipun Kevins Warsh í embætti seðlabankastjóra til fjögurra ára. Donald Trump Bandaríkjaforseti útnefndi Warsh í janúar síðastliðnum. Warsh sest í stól seðlabankastjóra undir þrýstingi stjórnvalda um að lækka stýrivexti en Trump hefur lengi krafist þess að vextir verði lækkaðir hraðar. Warsh hefur áður tekið undir með Trump að lækka þurfi stýrivexti. Jerome Powell, fráfarandi seðlabankastjóri, og forsetinn hafa lengi eldað grátt silfur saman. Nýr seðlabankastjóri hefur áður unnið fyrir bandaríska seðlabankakerfið og sem miðlari hjá Morgan Staney bankanum. Kevin WarshEPA / WILL OLIVER
Go to News Site