Collector
Vilja símasamband og örugga vegi þegar almyrkvi verður á sólu | Collector
Vilja símasamband og örugga vegi þegar almyrkvi verður á sólu
Fréttastofa RÚV

Vilja símasamband og örugga vegi þegar almyrkvi verður á sólu

Þjóðir sem undirbúa sig ekki undir almyrkva á sólu lenda alltaf í vandræðum, segir Sævar Helgi Bragason. Hann lýsir miklum vonbrigðum með undirbúning íslenskra stjórnvalda í aðdraganda almyrkvans. „Þetta er alltaf miklu meira fár heldur en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Sævar Helgi Bragason. „Þær þjóðir sem undirbúa sig lítið sem ekki neitt þær lenda alltaf í vandræðum.“ Sævar hefur sjálfur séð almyrkva fjórum sinnum í þremur löndum. Eftir deildarmyrkvann sem sást á Íslandi 2015 hóf hann að benda stjórnvöldum á að undirbúa þyrfti almyrkvann sem verður 12. ágúst í ár. Hann segir erlenda ferðamenn ekki eina áhyggjuefnið, heldur líka ferðalög heimamanna. „Það verður gríðarlega mikil umferð á vegum úti og hún hefst yfirleitt svona 15 mínútum eftir að almyrkvinn klárast.“ Hann bendir á að almyrkvinn í ágúst gangi yfir þéttbýlustu svæði landsins. „Besta mögulega sviðsmynd væri að það væri heiðskírt út um allt land þannig að fólk á höfuðborgarsvæðinu þyrfti ekki að fara neitt. Ef svo illa fer að það sé bara einn ákveðinn staður þar sem allt sést, þá verður þar mjög mikið kaos, vægast sagt.“ Sveitarstjórn í Vesturbyggð kalla eftir fjármagni í vegi, fjarskipti og neyðarviðbragð þegar almyrkvi verður á sólu í ágúst. Seinagangur stjórnvalda veldur vonbrigðum Sævar segir stjórnvöld hafa valdið sér vonbrigðum með seinagangi og áhugaleysi á undirbúningi. Hann segir ljóst að það séu varasamir staðir á landinu þar sem myrkvinn muni sjást vel og lengi og þangað sé líklegt að ferðafólk fari en þekki ekki vel aðstæður. Sárast þykir honum að stjórnvöld hafi sýnt lítinn áhuga á að fræða börn um náttúrufyrirbærið sem hann segir ógleymanlega upplifun. Talið er að margir leggi leið sína á vestasta hluta Vestfjarða, Snæfellsness og Reykjaness. Náttúruverndarstofnun fékk auka fjárveitingu til að sinna Látrabjargi, Snæfellsjökulsþjóðgarði og friðlöndum á Reykjanesi - og samráðshópur á vegum Almannavarna og stýrihópur innan stjórnarráðsins samhæfa undirbúning fyrir almyrkvann. - En að öðru leyti hafa stjórnvöld ekki gert ráð fyrir viðbótarfjármagni vegna atburðarins. Bæjarráð Vesturbyggðar bókaði nýlega um áhyggjur sínar af undirbúningnum. Þau vilja að ríkið tryggi Vegagerðinni fjármagn í viðhald malarvega í sveitarfélaginu. Gerður Björk Sveinsdóttir, sveitarstjóri í Vesturbyggð, segir ekki gert ráð fyrir auknu fjármagni í aðra vegi en þann sem liggur út að Látrabjargi. Bókun bæjarráðs Vesturbyggðar Fyrirséð er að mikill fjöldi ferðamanna muni sækja Vestfirði heim í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst 2026. Sérstaklega er bent á að almyrkvinn stendur lengst á Látrabjargi, sem gerir svæðið að einum eftirsóttasta áfangastað landsins til að upplifa atburðinn. Ljóst er að álag á innviði svæðisins verður verulegt og að aðstæður kalla á tafarlausar og markvissar aðgerðir með tilliti til öryggis vegfarenda. Bæjarráð lýsir verulegum áhyggjum af ástandi vegarins að Látrabjargi, sem á köflum er þröngur, illa farinn og viðkvæmur fyrir auknu umferðarálagi. Vegurinn er ekki í stakk búinn til þess að taka við þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er í tengslum við sólmyrkvann. Bæjarráð skorar á Vegagerðina að leggja tafarlaust mat á öryggi og burðargetu vegarins með hliðsjón af fyrirséðu álagi, ráðast í nauðsynlegar úrbætur þar sem þess er kostur. Bæjarráð lýsir jafnframt áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða tryggt fjármagn til að mæta þessum áskorunum, þrátt fyrir fyrirsjáanlegt álag og aukna áhættu. Bæjarráð bendir jafnframt á að fjarskiptasamband á svæðinu, þar á meðal á leiðinni að Látrabjargi, er ófullnægjandi og hefur versnað verulega eftir að 2G og 3G sendar voru teknir úr notkun. Á köflum er ekkert samband, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi vegfarenda. Í ljósi þess að mikill fjöldi fólks mun sækja svæðið heim á sama tíma er óásættanlegt að ekki sé tryggt lágmarks farsímasamband þannig að hægt sé að ná sambandi við neyðaraðila í gegnum 112. Bæjarráð skorar á Fjarskiptastofu að fara yfir stöðu fjarskipta á svæðinu með hliðsjón af öryggi vegfarenda, tryggja áreiðanlegt farsímasamband á helstu samgönguæðum og grípa til aðgerða, eftir atvikum með tímabundnum lausnum, fyrir atburðinn sjálfan. Bæjarráð lýsir áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða fjármagn til úrbóta í fjarskiptum þrátt fyrir augljósa og vaxandi öryggisþörf. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja bókun þessari eftir gagnvart Innviðaráðuneytinu, Vegagerðinni og Fjarskiptastofu, með það að markmiði að tryggja að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða í tæka tíð. Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar hefur bent á að erfitt verði að komast út á Látrabjarg. Þar eru fá bílastæði og fólk gæti þurft að ganga langar leiðir. Engin þjónusta verður þar og ekkert vatn í boði. Fólki sem vill leggja ferðalagið á sig er bent á að búa sig þannig að það geti verið úti í sólarhring. Aðrir vegir í Vesturbyggð, líkt og sá sem liggur út á Rauðasand, út Tálknafjörð og Arnarfjörð þoli ekki mikið. Gerður segir vegina ekki þola rútur. Þetta eru fáfarnir vegir og eina viðhaldið sem Vegagerðin gerir ráð fyrir er að hefla þá einu sinni á ári. Ekki gert ráð fyrir að greiða björgunarsveitarfólki fyrir þeirra framlag Þá vekur Gerður sérstaka athygli á fjarskiptasambandi. Ekki er gert ráð fyrir auknu fjármagni til viðbragðsaðila að vera til taks. Gerður bendir á að heilbrigðisstofnunin sé fáliðuð en þurfi að sinna viðbragði á stóru svæði. Fjöldi skemmtiferðaskipa verður líka við Vestfirði. Gerður tekur sérstaklega fram að ekki hafi verið gert ráð fyrir að greiða björgunarsveitum fyrir þeirra framlag.

Go to News Site