Fréttastofa RÚV
Erik Fleming, fíkniráðgjafi bandaríska leikarans Matthew Perry, hefur hlotið tveggja ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að dauða Perry. Fleming er sá fjórði sem er ákærður í máli Perrys. Fleming er sagður hafa útvegað leikaranum ketamíni í yfirskini þess að hann teldi sig vera gera góðum vini greiða. Hann segist hafa verið yfirbugaður af sorg og skömm þegar hann frétti af dauða Perry, þetta séu stærstu mistök lífs hans. Fleming er einn fimmeninganna sem sagður er hafa útvegað leikaranum ketamíni. Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að Perry hafði látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu. Honum hafði verið ávísað ketamíni en hafði glímt við fíknisjúkdóma árum saman.
Go to News Site