Fréttastofa RÚV
Mannbjörg varð þegar tveggja hreyfla skrúfuþota hrapaði í Atlantshafið um 130 kílómetra undan ströndum Flórída í Bandaríkjunum. Eitt af skipum bandarísku strandgæslunnar.EPA / Bienvenido Velasco Vélin var á leið frá Bahamaeyjum þegar slysið varð. Ellefu farþegar og áhöfn komust um borð í björgunarbát og höfðust þar við í fimm klukkustundir áður en þeim var bjargað eftir að strandgæslan nam neyðarboð frá sendi bátsins. Flutningavél flughersins varpaði niður matarpökkum, vatni og björgunarbúnaði áður en þyrla sótti fólkið. Flugstjóri flutningavélarinnar segir kraftaverki líkast að allir lifðu af. Yfirvöld á Bahama hafa fyrirskipað rannsókn á tildrögum slyssins.
Go to News Site