Collector
Segja forsetann alls ekki hafa átt leynifund með forsætisráðherra Ísraels | Collector
Segja forsetann alls ekki hafa átt leynifund með forsætisráðherra Ísraels
Fréttastofa RÚV

Segja forsetann alls ekki hafa átt leynifund með forsætisráðherra Ísraels

Utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir ekkert hæft í því að ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hafi rætt leynilega við Mohammed bin Zayed Al Nahyan, forseta landsins. „Furstadæmin afneita allri umfjöllun um meinta heimsókn Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og að hafa tekið á móti sendinefnd Ísraelshers,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins. Skrifstofa Netanjahús sagði frá fundinum og sagði hann marka tímamót í samskiptum Ísraels og furstadæmanna. Ekkert ríki hefur mátt þola þyngri atlögur af hálfu Írana í stríðinu sem hófst í febrúarlok.

Go to News Site