Fréttastofa RÚV
16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta lýkur í dag með þremur leikjum. Sjónvarpsleikur dagsins er Fylkir gegn FH sem hefst klukkan 15:00 og er sýndur á RÚV2. Beint að honum loknum eru Bikarmörk á dagskrá þar sem farið er yfir allar átta viðureignirnar í 16-liða úrslitum. Heimir Guðjónsson stýrir Fylki sem leikur í næstefstu deild en Heimir var látinn fara frá FH eftir síðasta tímabil. Vestri mætir Gróttu klukkan 14:00 í slag liða úr næstefstudeild. Bestu deildar lið KA tekur á móti Ægi sem leikur í næstefstu deild en sá leikur hefst einnig klukkan 14:00. Sjá má báða leiki í opinni dagskrá á Livey.
Go to News Site