Fréttastofa RÚV
Dómsmálaráðherra segir að ekki komi til greina að stefna lífi annarra í hættu til þess að nálgast jarðneskar leifar manns sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Samkvæmt óháðri úttekt væri vænlegra að beita handafli við leitina, sem myndi þýða að björgunarmenn þyrftu að síga ofan í sprunguna. Um 35 metra djúp sprunga Lúðvík Pétursson vann við að fylla í sprungu við einbýlishús í Grindavík í byrjun janúar 2024, þegar hann féll ofan í sprunguna. Talið er að sprungan hafi verið um þrjátíu og fimm metra djúp, þar af tuttugu metra djúpt vatn. Hans var leitað í þrjá daga við erfiðar aðstæður en án árangurs. Yfir tvö hundruð björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni. „Ég held að við séum öll á þeirri blaðsíðu að hugsa til þess með mikilli sorg, að svona skyldi hafa farið, þetta skelfilega slys,“Segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Fjölskylda Lúðvíks hefur óskað eftir að reynt verði að ná líki Lúðvíks upp. Dómsmálaráðuneytið stóð straum af óháðri rannsókn á hvort slíkt væri gerlegt og hvaða aðferðir hentuðu best við það. Niðurstaða þeirrar rannsóknar var sú að best væri að síga eftir honum og beita handafli við að grafa. Ekki var talið rétt að nota sprengjur eða stórtæk tól því þá gætu líkamsleifarnar færst til í sprungunni. „Ógnum ekki öryggi fólks til þess að fara í þessa leit“ Þorbjörg segir að þegar beiðni fjölskyldunnar um að kanna hvort þetta væri gerlegt kom fram, hafi ráðuneytið nálgast þetta þannig að greiða fyrir úttekt á því. „Til þess að sýna, ekki síst aðstandendum það í verki, að við viljum að þetta verði skoðað.“ „Hins vegar er það alveg skýrt af hálfu stjórnmálanna og stjórnvalda og alveg skýrt af minni hálfu, sem ráðherra almannavarna, að við ógnum ekki öryggi fólks til þess að fara í þessa leit.“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur endanlega ákvörðun um hvort reynt verði að ná Lúðvík upp eða ekki, og hefur það til skoðunar. Þáverandi lögreglustjóri hætti leitinni á sínum tíma þar sem hann taldi ekki forsvaranlegt að senda sigmenn niður í sprunguna vegna þeirrar áhættu sem í því fælist. „Spurningin hefur verið: Er hægt að fara þarna niður með myndavél og komast að því hvar maðurinn liggur og mögulega finna hann án þess að ógna öryggi annarra?“ segir Þorbjörg. „Ég á augljóslega ekki svarið við því núna en það verður ekki gert við þær aðstæður að öðrum eða lífi annarra verði hætt.“
Go to News Site