Vísir
Sterk fylgni er á milli þess hvernig fólk upplifir nærsamfélagið sitt og hvernig það kýs. Rannsóknir sýna að þau sem telja hverfið sitt vera í niðurníðslu, þjónustuna vera að versna og öryggi að minnka, líður eins og kerfið hafi brugðist þeim. Þetta á við um allt. Um biðlista á leikskólum. Um húsnæði sem er myglað og ekki lagfært. Um samgöngur sem virka ekki. Tilfinningin er að það sé enginn að hlusta. Og þannig verður til sterkur hvati til að kjósa þau sem segjast ætla að brjóta allt niður, þau sem eru nógu stóryrt í sínum yfirlýsingum og helst sjokkerandi líka, í þeirri veiku von að þetta sama fólk geti búið til eitthvað sem virkar betur. Sveitarstjórnarstigið gegnir lykilhlutverki í því að snúa þessari upplifun við. Þar finnur fólk fljótt hvort samfélagssáttmálinn haldi.
Go to News Site