Fréttastofa RÚV
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þegar hafa verið gerðar úrbætur á ýmsu sem starfshópur gerði athugasemdir við í nýútkominni skýrslu um aðgerðir og viðbragð almannavarna við jarðhræringunum við Grindavík. Embættið muni leggjast yfir skýrsluna og aðlaga verklag eftir þörfum. Í skýrslu starfshópsins eru meðal annars gerðar athugasemdir við óformlegt verklag, skort á skriflegu verklagi og óskýra ábyrgð hjá viðbragðsaðilum. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir gott að skýrslan sé loksins komin út. „Eins og staðan er núna þá erum við bara að rýna skýrsluna. Við erum nú þegar búin að bregðast við mörgum af þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni en við munum jafnframt fara ýtarlega yfir efni hennar og vinna að frekari úrbótum eftir því sem tilefni er til,“ segir Margrét Kristín. Hún segir skýrsluna mjög yfirgripsmikla. „Það er margt þar að finna sem við stöldrum auðvitað við. Það er ekkert sem við gerum einhverjar athugasemdir við en það er margt sem þarf að skoða. Heilt yfir er það niðurstaða nefndarinnar að það hafi gengið vel í rauninni allt almannavarnaviðbragð en að sjálfsögðu frátöldu banaslysinu sem varð í Grindavík í janúar 2024.“ Skýrsla starfshópsins nær til tímabilsins á milli október 2023 og nóvember 2024. Frá því að landris hófst við Svartsengi hafa alls verið níu eldgos norðan Grindavíkur, tvö þeirra utan þess tíma sem hópurinn hafði til skoðunar. „Það er bara búið að vera eðli þessarar atburðarásar að það er dreginn lærdómur eftir hvert og eitt eldgos og eftir hvern og einn atburð. Ég vil nú meina það að við séum komin á allt annan stað en við vorum á á þessum árum 2023 og 4. Þannig að það hafa fjölmargar lagfæringar og uppfærslur orðið síðan þá. Núna síðast þá uppfærðum við okkar eldgosaáætlun fyrir Reykjanesið,“ segir Margrét Kristín.
Go to News Site