Collector
Gallar á glænýju sjúkrahúsi í Álaborg | Collector
Gallar á glænýju sjúkrahúsi í Álaborg
Fréttastofa RÚV

Gallar á glænýju sjúkrahúsi í Álaborg

Nýtt háskólasjúkrahús í Álaborg í Danmörku var vígt við formlega athöfn í vikunni. Sjúkrahúsið er þegar umdeilt en átta fagfélög hafa gagnrýnt slæman aðbúnað í húsinu og óviðunandi starfsaðstæður. Þar á meðal eru fagfélög ungra lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku. Danska ríkisútvarpið, DR , greinir frá málinu. Gagnrýni fagfélaganna nær meðal annars til slæms tæknibúnaðar sem er sagður bitna á þjónustu og viðbragðstíma og þess að ekki sé nægilega vel gætt að einkalífi sjúklinga. Þá er gagnrýnt að ekki hafi verið tekin skref til að draga úr dagsbirtu í húsinu sem er sögð valda alls konar erfiðleikum. Heilsuhagfræðingur sem starfað hefur í áratugi segist aldrei hafa heyrt um viðlíka mál. Tengja megi mögulega ágalla á sjúkrahúsinu við tafir sem voru á smíði þess. Þrettán ár í smíði Nýja Háskólasjúkrahúsið í Álaborg hefur verið í bígerð síðan 2012, en fyrsta skóflustungan var tekin árið 2013. Byggingin er sú stærsta sem byggð hefur verið á Norður-Jótlandi og er um 180.000 fermetrar að stærð, að meðtöldu þjónustuhúsi sem telur 20 þúsund fermetra. Þann 8. febrúar á þessu ári voru fyrstu sjúklingarnir fluttir í sjúkrahúsið. Degi síðar voru fyrstu skurðaðgerðir á sjúkrahúsinu framkvæmdar. Það var síðan á þriðjudag sem María Danadrottning vígði nýja háskólasjúkrahúsið. Nú hafa átta fagfélög lýst yfir þungum áhyggjum vegna sjúkrahússins. Á því séu töluverðir ágallar sem nauðsynlegt sé að bæta úr. Af þessu tilefni hafa fagfélögin haft samband við opinberar vinnueftirlits- og heilbrigðiseftirlitsstofnanir og óskað eftir því að metið verði hvort aðstæður á sjúkrahúsinu uppfylli lög um starfsaðstæður og kröfur um öryggi sjúklinga. Fagfélögin átta eru meðal annars félög ungra lækna, hjúkrunarfræðinga, rafvirkja og blikksmiða- og pípulagninga. „Félagsmenn okkar eru farnir að finna fyrir gremju og vanmætti því þeir hafa verið að reyna að vekja athygli á þessum mistökum í marga mánuði án þess að neinn hlusti,“ segir Vibe Lyng Lindgren, talsmaður Ungra lækna á Norður-Jótlandi. Dagsbirtan baki ýmisleg vandræði Í kvörtunum félaganna er vakin athygli á aðför að einkalífi sjúklinga nýja háskólasjúkrahússins. Starfsmenn hafi slæma reynslu af því að þjónusta skjólstæðinga í rýmum sem ekki eru frágengin. Í því samhengi verði jafnvel að framkvæma skoðanir á sjúklingum sem eru óklæddir fyrir framan glerhurðir og allra augu. Þá er gerð athugasemd við að gögn sjúklinga séu aðgengileg almenningi sem er inni á biðstofu. Þessar athugasemdir varða atriði sem tengist fleiri meintum ágöllum á byggingunni – gluggana. Sjúkrahúsið er glæsileg bygging með miklu magni glugga en starfsfólk segir það skapa ýmis vandræði. Fyrir það fyrsta hafi ekki verið hugað að því að draga úr dagsbirtu sem berist inn í sjúkrahúsið. Þetta hefur ýmisleg neikvæð áhrif. Starfsmenn spítalans lýsa því að eiga í erfiðleikum með að sjá á tölvuskjái inni í byggingunni á daginn vegna mikillar birtunnar. Þetta veldur ekki aðeins óþægindum heldur einnig óvissu um gæði myndgreiningar. Þá segir að dagsbirtan í samblandi við ónæga loftræstingu valdi því að afar heitt verði í húsinu. Athugasemdir eru einnig gerðar við gæði boðbúnaðar sem notaður er til að kalla eftir aðstoð. Sjúklingar eigi ekki möguleika á að fá hjálp ef þeir detta, veikjast skyndilega eða þurfa á aðstoð að halda. Að lokum er gagnrýndur skortur á plássi til að geyma skrár. Unnið að lausnum Stjórn Háskólasjúkrahússins í Álaborg segir í yfirlýsingu að gagnrýni fagfélaganna komi sér í opna skjöldu. Í henni segir að margar áskoranir hafi verið við flutninga í nýju bygginguna sem hafi áhrif á vinnuumhverfi og nauðsynlegt sé að vinna úr. Unnið sé með viðeigandi aðilum að því að finna lausnir, bæði til langs og skamms tíma. Jes Søgaard, prófessor í heilsuhagfræði við Háskólann í Suður-Danmörku, segist ekki muna eftir álíka atviki. Hann hefur starfað í heilbrigðisgeiranum síðan 1980. „Þegar smíði sjúkrahúss hefur tafist svo lengi er hætta á að einhver vandamál komi upp þegar það er tekið í notkun,“ segir Søgaard DR . Vandræðin koma honum þó ekki á óvart, enda hafi legið fyrir að áskoranir hafi mætt byggingaraðilum við smíði hússins. Framkvæmdin hafi tafist töluvert vegna þessa. Framkvæmdir við nýjan Landspítala í Reykjavík hófust árið 2019. Þær hafa sömuleiðis gengið hægar en vonast var til og ekki er áætlað að sjúkrahúsið verði tekið til starfa fyrr en í árslok 2028.

Go to News Site