Collector
Leikskólar og skipulag eru ofarlega í hugum Kópavogsbúa | Collector
Leikskólar og skipulag eru ofarlega í hugum Kópavogsbúa
Fréttastofa RÚV

Leikskólar og skipulag eru ofarlega í hugum Kópavogsbúa

Leikskólar og skipulagsmál eru Kópavogsbúum ofarlega í huga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Kópavogur er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins, um áramótin bjuggu þar rúmlega fjörutíu þúsund manns. Á liðnu kjörtímabili hafa Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haft þar meirihluta, nú geta Kópavogsbúar valið á milli sjö flokka og framboða, sem auk þessara tveggja eru Viðreisn, Sósíalistaflokkurinn, Miðflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri græn og óháðir. Sumir þeirra Kópavogsbúa sem fréttastofa hitti á förnum vegi telja bæinn kominn að vaxtarmörkum – nóg sé komið af þéttingu og stækkun. Sum hverfi beri ekki þann umferðarþunga sem fylgir fleiri íbúum og fjölga þyrfti grænum svæðum þar sem fjölskyldur geti notið lífsins.

Go to News Site