Fréttastofa RÚV
Veggjalýs hafa fundist í öllum landshlutum á Íslandi. Þær kunna vel að meta upphituð híbýli Íslendinga og þeim hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna áratugi, bæði vegna aukinna ferðalaga Íslendinga til útlanda og fjölgunar fólks sem kemur hingað erlendis frá, til leikja eða starfa. Veggjalýs athafna sig helst á nóttunni. Þær lifa á blóði og geta drukkið sjöfalda þyngd sína. Stungurnar geta valdið kláða og útbrotum. Til að losna við veggjalús úr til dæmis rúmfatnaði þarf að þvo hann við að minnsta kosti 50 gráðu hita. Töskur og annað sem ekki er hægt að setja í þvottavél er hægt að frysta við mínus 18 gráður í að minnsta kosti 10 klukkustundir. Finnska fyrirtækið Valpas hefur hannað tæki sem fangar veggjalýs. Þá þarf hvorki hita- né kuldameðferð og engin eiturefni. Tækið lokkar kvikindin til sín á nóttunni og fangar þau í nokkurs konar gildru sem er komið fyrir undir rúmi eða við hliðina á því. Hótel sem setja upp búnaðinn geta þá fengið vottun þess að vera laus við veggjalýs. Martim Gois, framkvæmdastjóri Valpas, bendir á að veggjalýs séu hvimleiður fylgifiskur ferðalanga sem beri þá með sér milli landa eða landshluta. Ferðamenn hafi áhyggjur af þessu. „Samkvæmt könnun Phocuswright er þetta helsta áhyggjuefni ferðamanna í dag,“ segir Martim. Samkvæmt könnuninni eru hótelgestir tilbúnir til að greiða að meðaltali 3-5% meira fyrir herbergi sem hefur vottun gegn veggjalús. Slík vottun gæti því haft fjárhagslegan ávinning fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi. Meira en 30% hótela á Íslandi nýta sér tæknina nú þegar. Martim segir að ef 90% gististaða séu lausir við veggjalýs geti landið mögulega losað sig við óværuna fyrir fullt og allt. Finnsk uppfinning gæti mögulega útrýmt veggjalús. Tækið lokkar kvikindin til sín og fangar þau í nokkurs konar gildru. Hótel sem tryggja sér vottun gegn veggjalús geta rukkað meira fyrir gistingu.
Go to News Site