Fréttastofa RÚV
Haukar komu dýrvitlausir til leiks með bakið þétt upp við vegg í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í körfubolt aí kvöld. Haukar tóku á móti Njarðvík í þriðja leik liðanna en Njarðvík hafði unnið tvo fyrstu leiki einvígisins og gátu því með sigri í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. En Haukar ætluðu sér að halda einvíginu gangandi og gerðu það með átta stiga sigri, 77-69. Krystal-Jade Freeman var frábær í liði Hauka í kvöld og skilaði 26 stigum, 14 fráköstum og fjórum fráköstum, en fékk þó nokkurra mínútna hvíld í leiknum. Með sigrinum minnkuðu Haukar muninn í úrslitarimmunni í 2-1 og sá til þess að Haukar og Njarðvík mætast allavega einu sinni enn. Fjórði úrslitaleikur liðanna verður á sunnudagskvöld í Njarðvík og hefst klukkan 20:15. Vinni Njarðvík verður liðið Íslandsmeistari en takist Haukum að hafa betur verður oddaleikur í Ólafssal á Ásvöllum á miðvikudag.
Go to News Site