Fréttastofa RÚV
Framlög Dana og Norðmanna voru meðal þeirra tíu sem komust í úrslit Eurovision úr seinni undanúrslitum sem haldin voru í kvöld. Auk þeirra komust lögin frá Úkraínu, Búlgaríu, Ástralíu, Rúmeníu, Möltu, Kýpur, Albaníu og Tékklandi áfram. Það þýðir að fulltrúar allra þeirra Norðurlanda sem eru með stíga á stóra sviðið í Vínarborg á laugardagskvöldið. Þau bætast því í hóp þeirra tíu sem komust áfram á þriðjudag auk atriðis þeirra fjögurra stóru sem taka þátt í ár: Frakka, Þjóðverja, Ítala og Breta. Gestgjafarnir Austurríkismenn eru einnig sjálfkrafa í úrslitum. Fimmta stóra landið, Spánverjar, ákvað að sniðganga keppnina í ár vegna andstöðu við þátttöku Ísraels ásamt Írlandi, Hollandi, Slóveníu og Íslandi. Þessi lönd komust áfram í kvöld: Albanía Búlgaría Danmörk Kýpur Malta Noregur Rúmenía Tékkland Ástralía Úkraína Þessi lönd komust áfram á þriðjudag: Belgía Finnland Grikkland Ísrael Króatía Litháen Moldóva Pólland Serbía Svíþjóð
Go to News Site