Collector
Hátt í 80 drepin í ofbeldisöldu í Port-au-Prince | Collector
Hátt í 80 drepin í ofbeldisöldu í Port-au-Prince
Fréttastofa RÚV

Hátt í 80 drepin í ofbeldisöldu í Port-au-Prince

Að minnsta kosti 78 hafa verið drepnir í átökum vopnaðra glæpagengja í úthverfum Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, undanfarna viku. Fjöldi fólks hefur týnt lífi og þúsundir neyðst til að flýja heimili sín.EPA / JONET ST ELOIS Sameinuðu þjóðirnar segja tíu hinna látnu vera almenna borgara, fimm karla, fjórar konur og unga stúlku. Auk þess hafi hátt í sjötíu særst í átökunum. Hið minnsta fimm þúsund hafa neyðst til að flýja heimili sín síðan síðasta sunnudag til viðbótar þeim átta þúsundum sem lögðu á flótta síðustu tvo mánuði. Samtökin Læknar án landamæra segja að fjöldi fólks hafi leitað á sjúkrahús með skotsár í vikunni.

Go to News Site