Fréttastofa RÚV
„Þetta byrjaði allt með nísku. Ég keypti saumavél til að laga gallabuxurnar mínar og sauma búninga á dóttur mína.“ Óli tröllabarn, eins og hann er kallaður, fetar eigin slóðir með saumnálinni og kemur víða við. Á síðustu áratugum hefur hann sinnt ýmsum verkum á vettvangi viðburða og kvikmynda og saumar meðal annars leikmuni og leiktjöld og hleypur í ýmis verk við kvikmyndagerð. Nálin er aldrei langt undan og Óli saumar hlífðarábreiður fyrir hljóðfæramagnara og jafnvel stærðarinnar flygla. Það virðist engum takmörkunum háð hvað hvann tekur sér fyrir hendur. „Vinur minn á litla flugvél og innréttingin var orðin þreytt og snjáð. Ég saumaði rauða innréttingu í flugvélina og það var mjög skemmtilegt.“ Nú eru klæðskerasniðnar grillsvuntur í deiglunni fyrir sumarið.
Go to News Site