Fréttastofa RÚV
Forsetar Bandaríkjanna og Kína voru ósparir á yfirlýsingar um ágæti nýafstaðins fundar. Tveggja daga heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína lauk í morgun. Mikilvægasta tvíhliða samband í heimi Segja má að öllu hafi verið til tjaldað fyrir heimsókn Trumps til Beijing, höfuðborgar Kína. Xi Jinping, forseti Kína, sýndi Trump meðal annars Himnahofið og opinbert heimili forsetans. Hann hélt einnig hátíðarkvöldverð fyrir Bandaríkjaforseta og sendinefnd hans. „Í dag áttum við Trump forseti ítarlegar samræður um samband Kína og Bandaríkjanna auk alþjóðlegra og svæðisbundinna mála. Við teljum báðir að samband Kína og Bandaríkjanna sé mikilvægasta tvíhliða samband í heimi.“ Margir bundu vonir við að Trump gæti sannfært Xi um að setja meiri þrýsting á Írana til að fá þá að samningaborðinu og semja um frið í stríðinu við Bandaríkin. Óljóst er hverju var áorkað með heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína sem lauk í dag. Forsetarnir funduðu um mikilvæg málefni og sögðust báðir hæstánægðir með heimsóknina. Færri viðskiptasamningar litu dagsins ljós en búist var við fyrir fram. Gerðir voru samningar um kaup Kínverja á 200 Boeing-flugvélum og skuldbindingar um kaup á allt að 750 flugvélum, samkvæmt Trump, en kínversk stjórnvöld hafa ekki staðfest það. Trump gaf óljós svör um Taívan, sem hefur lengi verið bandalagsþjóð Bandaríkjanna. Ríkisstjórnir Bandaríkjanna hafa í gegnum árin ræktað sambandið við Taívan ásamt því að byggja upp diplómatísk tengsl við kínversk stjórnvöld. Það hefur lengi verið markmið stjórnvalda í Beijing að sameina Taívan og Kína. Xi hefur ekki útilokað að beita valdi til að ná því markmiði en Bandaríkin útvega eyjunni vopn. Trump sagði við fréttamenn um borð í flugvél sinni Air force one að Xi vilji ekki sjá átök brjótast út á eyjunni. „Ég gerði enga skuldbindingu en hlustaði á það sem hann hafði að segja.“ Hann taldi ekki hættu á deilum milli Bandaríkjanna og Kína vegna Taívan. „Nei, ég held ekki. Ég held að þetta verði í lagi. Hann vill ekki átök, hann vill ekki stríð.“ Trump ítrekaði að stefna Bandaríkjanna í málefnum Taívan sé óbreytt . Hæstánægðir með heimsóknina Leiðtogarnir áttu annan fund í morgun áður en Trump hélt heim á leið. Bandaríkjaforseti var stórorður eftir fundinn en yfirlýsingar Kínaforseta voru lágstemmdari. „Þetta er söguleg tímamótaheimsókn. Hingað til höfum við komið á fót nýju tvíhliða sambandi, eða uppbyggilegu sambandi um strategískan stöðugleika. Það má lýsa heimsókninni sem vatnaskilum,“ sagði Xi. Trump var himinlifandi með heimsóknina. „Ég vil þakka þér kærlega fyrir. Þetta hefur verið frábær heimsókn. Margt gott hefur komið út úr þessu. Við gerðum stórkostlega viðskiptasamninga. Frábært fyrir bæði ríkin.“
Go to News Site