Collector
Næstæðsti leiðtogi ISIS sagður felldur í þaulskipulagðri aðgerð | Collector
Næstæðsti leiðtogi ISIS sagður felldur í þaulskipulagðri aðgerð
Fréttastofa RÚV

Næstæðsti leiðtogi ISIS sagður felldur í þaulskipulagðri aðgerð

Abu-Bilal al-Minuki, næstæðsti leiðtogi hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki, er sagður hafa verið veginn í Nígeríu, að fyrirskipun Donald Trump Bandaríkjaforseta. Trump greindi frá drápi al-Minukis á Truth Social með þeim orðum að hugdjarfir bandarískir og nígerískir hermenn hefðu þaulskipulagt flókna aðgerð gegn einhverjum hættulegasta hryðjuverkamanni heims. „Abu-Bilal al-Minuki hélt að hann gæti falið sig í Afríku en hafði ekki hugmynd um að við hefðum flugumönnum á að skipa sem upplýstu um allar hans ferðir,“ skrifaði Trump. Al-Minuki hefur mátt þola þvingunaraðgerðir af hálfu Bandaríkjanna síðustu þrjú ár vegna tengsla sinna við hryðjuverkasamtökin. „Hann mun hvorki ógna íbúum Afríku lengur né undirbúa aðgerðir gegn Bandaríkjunum,“ skrifaði Trump og bætti við að mjög hefði dregið úr árásargetu hryðjuverkasamtakanna með dauða Al-Minukis. Trump þakkaði ríkisstjórn Nígeríu jafnframt fyrir liðsinnið.

Go to News Site