Collector
Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburði í Grafarvogi | Collector
Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburði í Grafarvogi
Fréttastofa RÚV

Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburði í Grafarvogi

Mikill munur er á fylgi flokkanna í Reykjavík eftir hverfum borgarinnar. Í Grafarvogi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings 47% kjósenda, Miðflokkurinn mælist með 18% og Samfylkingin 10%. Aðrir flokkar mælast varla í hverfinu. Eftir því sem vestar dregur eykst fylgi Samfylkingarinnar og dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins. Þetta sést þegar niðurstöður lokakönnunar Gallups eru brotnar niður eftir hverfum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn í öllum hverfum borgarinnar, ef frá eru talin póstnúmer 103 og 108 – Fossvogur og Bústaðahverfi – en þar mælist Samfylkingin með 28% en Sjálfstæðisflokkur 23%. Í miðbæ Reykjavíkur og Vesturbænum, póstnúmerum 101, 102 og 107, fær Sjálfstæðisflokkurinn 28%, Samfylkingin 25%, Vinstrið 14%, Miðflokkur 7%, Viðreisn 9% og Sósíalistaflokkurinn 9%. Sterkasta hverfi Flokks fólksins er Breiðholt. Þar mælist flokkurinn með 6% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn fær 33%, Samfylkingin 20%, Vinstrið 8%, Miðflokkurinn 13%, Viðreisn 7% og Sósíalistaflokkurinn og Framsókn 5% hvor. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst með hækkandi aldri Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst með hækkandi aldri. Í yngsta aldurshópnum, 18–29 ára, er Samfylkingin stærst með 28% en Sjálfstæðisflokkurinn næststærstur með 24%. Í öðrum aldurshópum er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Fylgið er mest í elsta aldurshópnum, 70 ára og eldri, eða 40% en þar er Samfylkingin með 22%. Þá er áberandi munur á fylgi Sósíalistaflokksins eftir aldri. Í yngsta aldurshópnum ætla 11% að kjósa flokkinn, en í þeim elsta aðeins 1%. Hjá flestum öðrum flokkum er ekki marktækur munur á fylgi eftir aldri. Lítill munur á milli kynja Tiltölulega lítill munur er á fylgi flokkanna eftir kyni. Þannig er ekki marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Viðreisnar, Framsóknar og Pírata eftir kyni. Hins vegar nýtur Vinstrið áberandi meiri stuðnings meðal kvenna, eða 14% samanborið við 8% hjá körlum og sama er að segja af Flokki fólksins, sem mælist með 4% stuðning meðal kvenna en aðeins 1% meðal karla. Þessu er öfugt farið hjá Miðflokki, þar sem stuðningurinn er 13% hjá körlum en 9% hjá konum, og Sósíalistum, þar sem stuðningurinn er 6% hjá körlum en 3% hjá konum.

Go to News Site