Collector
Afstaða Þjóðarflokksins stendur í vegi fyrir hægri stjórn | Collector
Afstaða Þjóðarflokksins stendur í vegi fyrir hægri stjórn
Fréttastofa RÚV

Afstaða Þjóðarflokksins stendur í vegi fyrir hægri stjórn

Troels Lund Poulsen hefur boðið leiðtogum annarra danskra stjórnmálaflokka til fundar í viðleitni til þess að mynda starfhæfa stjórn. Líklegra þykir nú en áður að hægt verði að mynda miðjustjórn. Íbúar Danmerkur hafa verið án ríkisstjórnar í fimmtíu og tvo daga, eða frá því kosið var til nýrrar ríkisstjórnar í mars. Illa hefur gengið að mynda nýja ríkisstjórn og enn sér ekki fyrir endann á stjórnarmyndunarviðræðum. Fyrr í vikunni fékk Troels Lund Poulsen, formaður Venstre, stjórnarmyndunarumboð, eftir að Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra og leiðtoga Jafnaðarmanna, tókst ekki að mynda ríkisstjórn. Poulsen hefur boðið leiðtogum annarra flokka á fundi, þar á meðal Frederiksen. Þykir það benda til þess að líkurnar á hreinni hægri stjórn fari dvínandi og sömuleiðis að viðræður beinist frekar að stjórnarsamstarfi yfir miðjuna. Á meðan á kosningabaráttunni stóð gagnrýndi Poulsen efnahagsstefnu Jafnaðarmanna harðlega, en hann segist opinn fyrir því að kanna möguleika á samstarfi milli flokkanna. Vijla ekki gefa eftir í innflytjendastefnu sinni Það sem stendur einna helst í vegi fyrir því að hægt verði að mynda stjórn til hægri virðist vera afstaða danska þjóðarflokksins, að því er fram kemur í dönskum fjölmiðlum. Morten Messerschmidt, formaður flokksins, hefur útilokað samstarf við Lars Lokke Rasmussens og flokk hans, Moderaterne. Í samtali við fjölmiðla í dag sagði Messerschmidt að hann ætlaði að standa við loforð til kjósenda sinna. „Við getum ekki sætt okkur við að Moderaterne og Radikale Venstre komist til valda og fái þannig neitunarvald yfir innflytjendastefnunni sem við lofuðum kjósendum.“ Þessi staða flækir viðræðurnar á hægri vængnum. Hún eykur jafnframt líkurnar á því að hægt verði að mynda miðjustjórn með þátttöku bæði Venstre og Jafnaðarmanna.

Go to News Site