Collector
Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi | Collector
Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi
Fréttastofa RÚV

Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi

Formaður landskjörstjórnar mætti í félagsheimilið Félagslund í Flóahreppi og kaus enda búsett í sveitarfélaginu en hér erum við að tala um Kristínu Edwald. Með nýju kosningalögunum, sem tóku gildi 1. janúar 2022 er gert ráð fyrir að kjörskrá verði rafræn, þar að segja á stafrænu formi í tölvu en ekki á pappír eins og við þekkjum í dag þar sem starfsmenn kjörstaða sitja við borð á kjörstaðnum og merkja við kjósendur í pappírskjörskrá. Góð þátttaka hefur verið í kosningunum í dag í Flóahreppi en kjörstaðurinn er opinn til klukkan 20:00 og eru rúmlega 550 manns á kjörskrá. „Á mannamáli þýðir þetta að í sveitarfélögum og í kjördæmum þar sem eru fleiri en ein kjördeild þá getur kjósandi mætt í hvaða kjördeild, sem er innan síns sveitarfélags eða síns kjördæmis og kosið þar. Það er eitt en annað er það að alltaf að loknum kosningum þá þarf að safna upplýsingum fyrir Hagstofu Íslands fyrir hagsýslugerð,” segir Kristín og heldur áfram. „En með rafrænu kjörskránni, þá gerist þetta bara sjálfkrafa og fer beint úr henni til Hagstofu Íslands”. Og er þetta ekki framtíðin eða hvað? „Þetta er framtíðin og vonandi kemst þetta bara sem fyrst í notkun í öllum kosningum,” segir Kristín. Mikil ánægja er hjá starfsfólki kjörstjórnar Flóahrepps með rafrænu kjörskrána. „Þetta er bara frábært, kemur bara virkilega vel út og auðvelt viðmót í kringum þetta allt saman og er auðvitað bara framtíðin,” segir Dagbjartur Ketilsson, starfsmaður í kjörstjórn Flóahrepps. Kristín segir að sjálfkjörið sé í fjórum sveitarfélögum og að það séu óhlutbundnar kosningar í sjö sveitarfélögum en Flóahreppur er henni ofarlega í huga á kjördegi. „Já, því ég er alsæl með þessa rafrænu kjörskrá hér í Flóahreppi og alsæl með Þjóðskrá Íslands, sem ber ábyrgð á og hefur sinnt þessu verkefni og þá í samstarfi við landskjörstjórn og yfirkjörstjórn Flóahrepps hér í dag,” segir Kristín. Notast er við rafræna kjörskrá í kosningum í Flóahreppi en það er eina sveitarfélag landsins þar sem slík kosning fer fram. Formaður landskjörnar segir rafræna kosningu vera framtíðina þar sem kjörskráin uppfærist í rauntíma og allt á stafrænu formi.

Go to News Site