Collector
Ásdís „stolt og meyr“ yfir fyrstu tölum úr Kópavogi | Collector
Ásdís „stolt og meyr“ yfir fyrstu tölum úr Kópavogi
Fréttastofa RÚV

Ásdís „stolt og meyr“ yfir fyrstu tölum úr Kópavogi

Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, gleðst yfir fyrstu tölum þaðan. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45% atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. Ef þetta gengur eftir er Sjálfstæðisflokkurinn að fá sína bestu kosningu í Kópavogi síðan 2006. „Ég er auðvitað bara stolt og meyr yfir þessum tölum,“ segir Ásdís. „Þetta eru fyrstu tölur, við verðum auðvitað að vera með varnagla á því.“ Kópavogur Nýjustu tölur frá 16. maí 2026 kl. 22:17. Talin atkvæði: 10,087 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar . &>"' Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,3% atkvæða fyrir fjórum árum. Það dugði honum til fjögurra fulltrúa í bæjarstjórn. Nú skila 45% honum 6 fulltrúum. Samfylkingin bætir líka við sig miklu fylgi og fer úr 8,2% í 19,3%. Viðreisn heldur sínum manni og Miðflokkurinn fær inn fulltrúa eftir að hafa ekki náð kjöri fyrir fjórum árum. Framsókn tapar einu sæti. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45% atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum.

Go to News Site