Collector
Flokkurinn mæti sterkur og sameinaður til leiks | Collector
Flokkurinn mæti sterkur og sameinaður til leiks
Fréttastofa RÚV

Flokkurinn mæti sterkur og sameinaður til leiks

Guðlaugur Þór segir að það stefni í hægri sveiflu í þessum kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn hafi mætt sterkur og sameinaður til leiks. „Kjósendur sjá muninn á verkum Sjálfstæðismanna í sveitarfélögum og í ríkisstjórn og verk vinstri manna. Það að hækka skatta og gjöld og auka umsvif það skapar enginn verðmæti. Og við finnum það alls staðar að fólk áttar sig á því hvað það hefur þegar Sjálfstæðismenn eru í meirihluta og veit líka hvaða afleiðingar það hefur þegar vinstri menn stjórna. Skýrasta dæmið er Reykjavík, allir eru með ákall um breytingar vegna þess að þar hafa vinstri menn stjórnað í mjög langan tíma með hræðilegum afleiðingum fyrir íbúana,“ sagði Guðlaugur Þór á kosningavöku Sjálfstæðismanna í Reykjavík áður en fyrstu tölur voru birtar í sveitarfélaginu.

Go to News Site