Collector
Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí | Collector
Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí
Fréttastofa RÚV

Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí

Fréttastofa náði tali af þeim Helga Áss Grétarssyni og Kjartani Magnússyni á kosningavöku Miðflokksins. Báðir voru þeir áður í Sjálfstæðisflokknum. „Ég er spenntur fyrir því að vinna áfram undir merkjum Miðflokksins og bæta starfið enn frekar til þess að ná enn betri árangri og koma á heppilegra skipulagi,“ segir Helgi Áss. „Það eru spennandi tímar framundan hjá Miðflokknum.“ „Ég held að þetta verði góð nótt,“ segir Kjartan. „Ég skynja hægri sveiflu í borginni og ég er mjög bjartsýnn á að það verði myndaður á morgun eða hinn góður hægrisinnaður meirihluti sem mun ekki hækka skatta frekar í Reykjavík.“

Go to News Site