Collector
„Auðvitað ætluðum við okkur meira“ | Collector
„Auðvitað ætluðum við okkur meira“
Fréttastofa RÚV

„Auðvitað ætluðum við okkur meira“

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segir Samfylkinguna geta vel við unað haldi hún sínum fimm borgarfulltrúum eftir langa valdatíð í Reykjavík. Fyrstu tölur séu í samræmi við nýlegar kannanir. Steinunn er í 3. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík og því líkur á að hún verði borgarfulltrúi á næsta kjörtímabili. „Auðvitað ætluðum við okkur meira. Við sjáum auðvitað fram á núna mögulega mjög skarpa hægri beygju í borginni. Þá er það auðvitað okkar hlutverk sem jafnaðarmenn að standa vörð um jöfnuðinn og velferðina í borginni, hvort sem við gerum það úr minnihluta eða meirihluta,“ segir Steinunn.

Go to News Site