Fréttastofa RÚV
Tölur úr Reykjavíkurborg eru vonbrigði fyrir Vinstrið, segir Líf Magneudóttir, sem skipar 2. sæti framboðsins. Hún útilokar ekki að sameiginlegt framboð Vinstrisins eigi eftir að vinna áfram saman. „Ég held að þessar kosningar eigi eftir að marka leiðina að því. Ég veit ekki hvað verður en ég held að félagshyggjufólk og umhverfisfólk þurfi að sameinast og ég held að þetta sé vísir að því samtali framvegis,“ sagði Líf Hvaða tilfinningu ferðu með inn í nóttina? „Ég er náttúrulega brjáluð, sko.“
Go to News Site