Fréttastofa RÚV
Þrír flokkar hafa verið orðaðir við meirihluta með Sjálfstæðisflokki - Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Viðreisn. En hvernig eiga þessir flokkar málefnalega saman með Sjálfstæðisflokki? Sjálfstæðisflokkurinn á mesta samleið með Framsóknarflokki. Næstmesta samleið á hann með Miðflokki. Töluvert ber í milli hjá Sjálfstæðisflokki og Viðreisn, 30 skref, en samkvæmt svörum í prófinu á Viðreisn meiri málefnalega samleið með vinstri flokkunum en þeim sem nú eru orðaðir við mögulegan meirihluta. Hér er greining á málefnalegri samleið flokkanna í Reykjavík.
Go to News Site