Fréttastofa RÚV
Söngleikurinn Ormstunga , sem byggður er á Gunnlaugs sögu ormstungu, hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna, í ár eða tólf talsins. Næst flestar tilnefningar fær leikritið Óresteia sem fær tíu tilnefningar og þar á eftir Galdrakarlinn í Oz með sex. Þjóðleikhúsið hlýtur alls 32 tilnefningar fyrir sjö sýningar, þar með talin samstarfsverkefni. Að undanskildum Ormstungu og Óresteiu var Lína Langsokkur sú sýning Þjóðleikhússins sem fékk flestar tilnefningar, fimm, Söngleikurinn Kabarett sem Leikhús ókunnuga fólksins sviðsetti í samstarfi við Þjóðleikhúsið hlýtur þrjár tilnefningar. Salka – ástin og dauðinn sem Landnámssetrið í Borgarnesi setti upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið hlýtur einnig þrjár tilnefningar. Íbúð 10B fær eina tilnefningu. Borgarleikhúsið hlýtur alls 15 tilnefningar fyrir sex sýningar, samstarfsverkefni þar með talin. Galdrakarlinn í Oz fær sex tilnefningar, Hamlet fær þrjár og Skammarþríhyrningurinn sömuleiðis. Niflungahringurinn allur og Moulin Rouge! fá eina tilnefningu hvor. Óperan La bohéme sem sviðslistahópurinn Óður setti upp í samstarfi við Borgarleikhúsið fær eina tilnefningu. Tjarnarbíó hlýtur 13 tilnefningar og MurMur Productions átta. Íslenski dansflokkurinn hlýtur fimm tilnefningar og Leikfélag Akureyrar eina.
Go to News Site