Fréttastofa RÚV
Þetta var annar leikurinn þar sem Grindvíkingar gátu tryggt titilinn eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki einvígisins. Þeir gengu líka hratt til verks í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld, þrátt fyrir að DeAndre Kane og Ólafur Ólafsson væru fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Grindavík var 31-19 yfir eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta og var staðan 48-45 í leikhléi. Sóknarvél gestanna hrökk svo hressilega í gang í þriðja leikhluta. Grindavík skoraði 36 stig í leikhlutanum og náði forskoti sem Tindastóll náði ekki að brúa. Grindavík vann með 109 stigum gegn 102 og er Íslandsmeistari karla 2026. Jeremy Pardo átti stórleik í liði Grindavíkur og skoraði 48 stig, þar á meðal þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir og munurinn eitt stig og svo tvö víti þegar 15 sekúndur voru eftir. Löng bið eftir titli Grindavík varð síðast Íslandsmeistari vorið 2013 þegar liðið vann titilinn annað árið í röð. Fyrsta meistaratitilinn vann félagið árið 1996. 13 ára bið tók enda í kvöld, bið sem hefur verið viðburðarrík í meira lagi. Í kjölfar eldsumbrotanna í heimabænum lék Grindavík í Smáranum í Kópavogi á meðan rýming stóð yfir í Grindavík. Íþróttahús félagsins skemmdist verulega í atganginum sömuleiðis. Körfuboltalið Grindavíkur urðu sameiningartákn Grindvíkinga sem þurftu að yfirgefa heimabæinn. Og nú eru Grindvíkingar Íslandsmeistarar.
Go to News Site