Fréttastofa RÚV
Arsenal vann Burnley í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, 1-0. Kai Havertz skoraði eina mark leiksins á 37. mínútu. Arsenal er nú með fimm stiga forskot á Manchester City, sem á leik til góða gegn Bournemouth á útivelli á morgun. Mistakist City að vinna þann leik er Arsenal meistari í fyrsta sinn síðan 2004. Vinni City á morgun ráðast úrslitin í lokaumferðinni komandi sunnudag. Arsenal sækir þá Crystal Palace heim á meðan City tekur á móti Aston Villa. Kai Havertz fagnar marki sínu gegn Burnley í kvöld.EPA / DAVID CLIFF
Go to News Site