Fréttastofa RÚV
Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, gat ekki leikið í kvöld þar sem hann ristarbrotnaði í þriðja leik liðanna fyrir helgi. Hann segir það hafa verið erfitt að geta ekki spilað en hrósaði liðsfélögum sínum í hástert. Hann er uppalinn Grindvíkingur og titillinn skiptir hann miklu. „Ég er búinn að bíða lengi eftir þessu, alveg síðan ég veit ekki hvenær. Það er ótrúlegt hvað ég er búinn að bíða lengi eftir þessu og bara allt samfélagið. Og fyrir Grindavík líka, ég veit ekki hvað ég á að segja, ég er orðlaus,“ sagði Ólafur. Leikmenn og þjálfari Grindavíkur voru nánast orðlausir eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn á Sauðárkróki í kvöld. Liðsheildin og grindvíska samfélagið var mönnum ofarlega í huga. Eldri bróðir Ólafs, Jóhann, þjálfar lið Grindavíkur. Hann var klökkur þegar titillinn var í höfn. „Þú getur rétt ímyndað þér, allt sem við höfum gengið í gegnum. Já, þetta er búið að vera alveg sjúllað, þetta er geggjað,“ sagði Jóhann. Leikmenn og þjálfari Grindavíkur voru nánast orðlausir eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn á Sauðárkróki í kvöld. Liðsheildin og grindvíska samfélagið var mönnum ofarlega í huga. Einn af þeim sem steig fram fyrir skjöldu í fjarveru Ólafs og DeAndre Kane var Arnór Tristan Helgason. Hann skoraði 11 stig og skilaði dýrmætu framlagi, þrátt fyrir að hafa verið mikið meiddur í vetur og ekki spilað mikið í einvíginu. „Ég á ekki til orð, ég veit ekki hvort þetta sé alvöru eða hvort mig sé að dreyma,“ sagði Arnór. Hann sagði Grindavíkur liðið stórt og sterkt og alltaf einhverjir til í að taka ábyrgðina. „Þetta er fyrir fólkið,“ endaði hann á að segja. Leikmenn og þjálfari Grindavíkur voru nánast orðlausir eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn á Sauðárkróki í kvöld. Liðsheildin og grindvíska samfélagið var mönnum ofarlega í huga. Jeremy Pargo átti einstakan leik og skoraði 48 stig. Hann var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar. „Ég hef verið að segja við strákana að þetta var guð, ekki ég. Hann kom mér á rétta staði og blessaði mig með því að ég hitti. Við hittum úr mörgum stórum skotum sem lið, ekki bara ég. Guð kom okkur hingað og við kláruðum þetta,“ sagði Jeremy. Leikmenn og þjálfari Grindavíkur voru nánast orðlausir eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn á Sauðárkróki í kvöld. Liðsheildin og grindvíska samfélagið var mönnum ofarlega í huga.
Go to News Site